RÁÐGJÖF
VÍSINDALEG NÁLGUN
Aðferðafræði mín byggir á rannsóknum í íþróttasálfræði og viðurkenndum aðferðum. Allt sem ég geri er byggt á vísindum til að hjálpa íþróttafólki að byggja upp seiglu og hámarka frammistöðu undir pressu.
HAGNÝT OG SKILVIRK ÞJÁLFUN
Ég tala ekki bara um kenningar—ég veiti þér hagnýt verkfæri sem þú getur notað á æfingum og í keppni, þannig að andleg færni verði eðlilegur hluti af þinni rútínu.
EINSTAKLINGSMIÐUÐ ÞJÁLFUN
Sérhver íþróttamaður er einstakur. Ég bý til sérsniðin andleg þjálfunarprógrömm byggð á þínum markmiðum, áskorunum og þörfum, til að tryggja að þú fáir það sem hentar best fyrir þig.
HEILDRÆN NÁLGUN
Þjálfun mín snýst ekki bara um frammistöðu—heldur um að þróa þig sem íþróttamann og einstakling. Við vinnum með hugarfar, vellíðan og langtímaþróun til að tryggja jafnvægi og árangur, bæði í íþróttum og lífinu.
FRAMMISTÖÐUMIÐUÐ ÞJÁLFUN
Þjálfun mín er hönnuð til að hjálpa þér að blómstra í keppni. Við vinnum með aðferðir sem auka sjálfstraust, hjálpa þér að takast á við kvíða og bæta einbeitingu svo þú getir skilað þinni bestu frammistöðu þegar mest á reynir.
MIKIL ÁSKORUN OG STUÐNINGUR
Ég skapa umhverfi þar sem þú finnur fyrir hvatningu til að vaxa en á sama tíma fyrir miklum stuðningi. Markmið mitt er að hvetja þig til að vaxa og þróast þannig þú byggir upp trú á sjálfan þig og náir langvarandi árangrii.
ÞJÓNUSTA
EINSTAKLINGSRÁÐGJÖF
Fyrir þig sem vilt bæta andlega og sálræna færni og öðlast meiri stöðugleika í þinni íþrótt. Saman munum við byggja upp tækni þannig að þú getir náð markmiðum þínum og draumum þar sem ég gef þér þau verkfæri sem þú þarft og þú vinnur vinnuna. Samanborið við þann vilja að byggja sterkari vöðva þá er ekki nóg að hlusta á ráð styrktarþjálfara. Styrktarþjálfarinn þinn mun útskýra hvað þú átt að gera til þess að byggja upp styrk en það ert þú sem þarft að lyfta lóðunum.
Hentar fyrir alla, allt frá íþróttafólki, fólki í reglulegri hreyfingu, þjálfurum, börnum og ungmennum. Einstaklingsráðgjöf fer fram á staðnum (face to face) en virkar líka jafn vel í gegnum stafrænan vettvang (t.d. Zoom, FaceTime, Skype, Teams).


WORKSHOPS OG FYRIRLESTUR
Fyrirlestrar og workshops geta verið í mismunandi mynd í hvert skipti. Endilega hafa samband til þess að við getum komist að bestu lausn fyrir þinn hóp.
Nokkrar tillögur um hvað fyrirlestrar geta snúist um (ath listinn er ekki tæmandi):
- Liðs gildi og markmið
- Hvatning
- Hvernig get ég notað íþróttasálfræði
- Hvernig get ég byggt upp sterka andlega vöðva
- Leiðin til baka eftir meiðsli/forvarnir gegn meiðslum
- Umskipti (e. transition) frá yngriflokkum yfir í meistaraflokk
- Umskipti frá Íslandi (e. Cultural transition)
LIÐSVINNA
Liðsvinna eru allt frá vinnustofum í að vinna með liði yfir lengri tíma. Markmið geta falið í sér þjálfun í andlegri færni, svo sem samheldni, sjálfstraust, samskipti og leiðtogahæfni liðs.
Markmiðið mitt með öllum liðum er einfalt: Að hámarka frammistöðu og vellíðan íþróttamanna og þjálfara, og að aðstoða leikmenn og þjálfara við að styrkja tengslin sín við menninguna í liðinu.
